Indland
Indland
2008
Film Nagar er hverfið uppi á hæðinni fyrir ofan okkur. Þarna búa Tollywood stjörnrunar í glæsilegum villum. Þetta er uppáhalds hverfið mitt. Ég keyri í gegnum það á hverjum degi á leiðinni í vinnuna. Þarna er fresh@FilmNagar sem er kjörbúð, Coffie Day fyrir kaffið og skemmtilegt mannlíf.
Í Filmnagar förum við líka í Tennis.
29.2.2008
Film nagar
Video tekið á símann minn í auto á leiðinni í tennis. Ökumaðurinn var verulega upp með sér yfir athyglinni og spilaði tónlistina í botn. Hann er frá Dehli, það átti að koma fram.
Takið eftir bláu tjöldunum, þessi tjöld eru út um alla borg þar sem eitthvað laust pláss er. Þetta eru tjöld fátæklinganna.