Meistaranám í tónsmíðum

við

Listaháskóla Íslands

 




1.   Tegund náms


Heiti námsbrautar: Meistaranám í tónsmíðu

Prófgráðuheiti: M.A. í tónsmíðum

Einingafjöldi: 120 ECTS, 30 ECTS á önn

Lengd náms: 2 ár 4 annir

Einingafjöldi: 120 ECTS, 30 ECTS á önn

Lengd náms: 2 ár 4 annir


II.   Markmið og tilgangur náms


Tilgangur meistaranáms í tónlist við Listaháskóla Íslands er að auka fjölhæfni og víðsýni nemandans ásamt því að auka starfsmöguleika hans í fjölbreyttu tónlistarlífi samtímans hverju sinni.

Með fjölbreyttu námi á sérsniðinni námslínu mun nemandinn öðlast gagnrýna sýn á eigin listsköpun og auka hæfni sína til að takast á við verkefni í tengslum við aðrar listgreinar og annað menningarumhverfi.

Með rannsóknarbundnu tónsmíðanámi öðlast nemandi styrk og færni til að nýta aðferðafræði rannsóknarsamfélagsins til sköpunar/verkefnisþróunnar á nýstárlegann hátt - þar sem saman fara eldri aðferðafræði í bland við nútímalegar rannsóknaraðferðir í þeim tilgangi að skapa nemandum sérstöðu, styrk  og færni í nútímasamfélagi lista og menningar.


III.   Megináherslur


Fagurfræðilegar rannsóknir á sérstökum sviðum tónsköpunar og tónlistar

Rannsóknir og þróun nýrra aðferða við tónsköpun og tónflutningi með nútímatækni

Samþætt rannsóknarverkefni mili tónlistar, sjónlistar og sviðslistar -  í fjölbreyttu nútímasamfélagi

Rannsóknir á menningararfleifð Íslendinga - á sviði tónlistar

Suðupottur


IV.   Samsetning og bakgrunnur nemendahóps


a.Nemendur komi úr fjölbreyttum sviðum tónlistarlífsins

b.Bakkalárí tónlist – eða sambærilegt nám eða starfsreynsla – mat fagráðs meistaranáms í tónlist.


V.   Rannsóknir og listsköpun


Samþætt rannsóknarverkefni með þátttöku atvinnulífsins og opinberra rannsóknastofnanna


Með rannsókn í tónlist og tónsköpun er átt við ítarlega og skilyrta leit er beinist að margvíslegum huglægum og hlutlægum eðlisþáttum tónlistar til tónsköpunar, tónflutnings, fræða og félagsllegra og menningarlegara fyrirbæra.


VI.   Tengsl við önnur fag- og fræðasvið Listaháskólans


Efstu stig bakklársnámsskeiða nýtast sem valnámskeið meistarnáms og námskeið meistarstigs geta  nýst sem sérverkefni fyrir bakklársnemendur –  að uppfylltum ákveðnum kröfum


Sameiginleg námskeið allra meistaranema  eru 20% af heildarnámsefni meistaranáms í tónlist.



VII.   Alþjóðlegur samanburður og staða:


Tónlistardeildin er aðili að samtökum evrópskra tónlistarháskóla AEC og samtökum norrænna tólistarháskóla ANMA auk þess að vera aðili að European Jount Music Masters.



VIII.   Samvinna við aðra háskóla og stofnanir:


Listaháskólinn er aðili að alþjóðlegum samstarfsnetum um nemenda- og kennaraskipti og gerir gagnkvæma samninga um slík skipti við listaháskóla í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Asíu.



X.   Stjórnsýsla, skipulag og rekstrarform


  1. Fagleg stjórn

  2. Yfirstjórn er í höndum deildarforseta tónlistardeildar ásamt fagráði innan deildar.

Fagráð er skipað fagstjórum tónlistardeildar.

Fagstjórar tónsmíðar sjá um skipulagningu og framkvæmd  meistaranáms í samráði við fagráð.

Fastráðnir háskólakennarar sinna kennslu á meistarastigi auk utanaðkomandi listamanna og sérfræðinga.



XI.   Inntaka nýnema:


Umsækjandi til meistaranáms í tónlist skal leggja fram ítarlega tillögu að námsleið og jafnframt  uppfylla eftirfarandi skilyrði:


Búa yfir færni, þekkingu og listrænum skilningi á tónlist og hafa notið faglegrar leiðsagnar.

Þekki kenningar, hugtök og aðferðafræði tónlistarinnar, geti aflað sér gagna/upplýsinga sem tengjast tónlist og nýtt sér þau til tónsköpunar, tónlistarflutnings og/eða rannsókna.

Geti beitt kunnáttu sinni, þekkingu og listrænum skilningi á tónlist af fagmennsku, og geti rökstutt skoðanir sínar og ákvarðanir út frá fræðilegum og listrænum forsendum.

Sýni frumleika og búi yfir innsæi til sjálfstæðrar sköpunar, túlkunar eða rannsókna, og geti miðlað þekkingu í tónlist til ólíkra hópa og í mismunandi umhverfi.

Hafi gagnrýna sýn á eigin verk og annarra, hafi tileinkað sér víðsýni og frumleika í hugsun og búi yfir þekkingu og þjálfun sem er nauðsynleg til meistaranáms í tónlist.



Umsókn metin út frá formlegum skilyrðum

Umsækjandi metinn út frá fyrri menntun og listrænum ferli

Námsáætlun metin út frá fræðilegum og listrænum forsendum

Viðtal við hæfa umsækjendur (út frá umsókn)


XII.   Húsnæði, búnaður og tæki:


Námið fer fram í kennslurými skólans -  fyrirlestrarými, kennslustofum og æfingaherbergjum – og utan stofnunar á þeim stöðum sem tengjast sérsviði hverrar námslinu.


Kennslufyrirkomulag tekur mið af sérverkefnum hvers nemenda. Kennslan fer m.a. fram í hópavinnu, viðtölum við leiðandi  listamenn – fyrirlestrum með innlendum og erlendum sérfræðingum,  verkefnum utan skóla með þátttöku í atvinnulífinu, rannsóknum – þar sem niðurstöður verða forsenda og grunnur fyrir listsköpun og listtúlkun.


Þá munu nemendur taka þátt í  umræðuhópum þar sem verkefni og viðfangsefni hvers og eins eru skoðuð út frá ólíkum sjónarhornum. Lögð verður áhersla á  áræðni og frumsköpun í verkefnavinnu - með áskorun og frumleika að leiðarljósi. Þá verður verkefnastjórnun í tengslum við meistaraverkefni mikilvægur þáttur í heildarnámsferli nemandans.



XIV.   Hagnýtt gildi náms:

fjölbreyttari tónsmíðar – fjölbreyttara menningarsamfélag,

gagnrýni – sjálfsgagnrýni samfélagsins á sviði lista,

faglegri umfjöllun um tónlist á opinberum vettvangi,

verkefnastjórnun í tónlist og menningu,

rannsóknir á íslenskum þjóðararfi,

nýjungar í listkennslu, 

tenging/samruni listgreina,

ný form á listflutningi

nýjar aðferðir í tónsköpun,


14.1.   Starfsmöguleikar nemenda og réttindi

sjálfstætt starfandi tónsáld

kvikmyndatónskáld

leikhústónsklad

auglýsingatónlist

hljóðversvinna

kennsla

rannsóknir - fræðitörf

verkefnastjórnun

útsetningar

raddskriftir

gagnrýni

kórstjórn

kirkjutónlist

  1. hljóðfæraleikur


14.2.   Aðgangur nemenda að frekari námi (texti deildar)

metið sem aðfaranám PhDgráðu – þriðja þrep


XVI.   Gæðaviðmið


Búa yfir færni, þekkingu og listrænum skilningi á tónlist - í framhaldi af bakkalársgráðunni og geta sýnt frumkvæði og fjölbreytileika í sköpun og beitt viðurkendum aðferðum í listrannsóknum.

Geta samþætt og nýtt sér færni, þekkingu og listrænan skilning til skapandi verka og/eða frumlegrar útfærslu í tónlist og tónvísindum

Sé fær um að leita þekkingar af mismunandi sérsviðum innan greinarinnar, sem og af öðrum fræðasviðum, og samþætt hana í þágu eigin viðfangsefna, hafi hæfni til að leysa úr vandamálum og takast á við aðstæður af ýmsum toga.

Geta miðlað niðurstöðum sínum og/eða listrænum ásetningi af öryggi, til ólíkra hópa og í mismunandi umhverfi.

Geta komist að ákveðnum, sjálfstæðum og rökstuddum ályktunum/niðurstöðum sem byggja á greiningu, rannsóknum og gagnrýni, búi yfir kunnáttu og færni til að starfa sjálfstætt sem sérfræðingur/atvinnumaður í tónlist.


XVII.   Kennsluskrá og uppbygging náms:


17.1.   Almennt um uppbyggingu náms (texti úr heildarplaggi)

17.2.   Samsetning náms:

a)Kjarni

b)Skyldunámskeið / valnámskeið

c)Sameiginleg námskeið með öðrum deildum

d)Sjálfstæð vinna með sérfræðingi (tútor)

e)Vægi aðferðafræði, listheimspeki, og menningarsögu í sameiginlegum kjarna námsbrauta á meistarastigi

f)Vægi sérhæfðrar aðferðarfræði

g)Hlutfall sérhæfingar

h)Námskeið sem nýtast bakkalárnemendum

i)Bakkalárnámskeið sem nýtast nemendum námsbrautarinnar

j)Sameiginlegar málstofur með öðrum námsbrautum

17.3.   Útskriftarverkefni:

a)Skilgreining á útskriftarverkefni

b)Sýning / flutningur á útskriftarverkefni

17.4.   Námsmat:

a)Almennt

Utanaðkomandi prófanefnd sérfræðinga metur lokaverkefni út frá listrænum og fræðilegum forsendum.


Lokaverkefni til meistaranáms í tónlist skal byggja á upphaflegri samþykktri tillögu að námsleið og skal meistarneminn við lok meistaranáms í tónlist jafnframt uppfylla kröfur sbr. B 16.2:


b)Mat á útskriftarverkefni


17.5..   Fyrirlestrar, einkatímar, masterklassar, hópvinnutímar, sérverkefni utan skóla, samvinnuverkefni við   aðila utan skólans og málstofur

17.6.   Viðburðir: Tónleikar, fyrirlestrar, opinberar kynningar



Nánari upplýsingar veita:

Sóley Björt Guðmundsdóttir: soleybjort@lhi.is

og

kjol@lhi.is