Hilmar Þór Hilmarsson
                        Velkomin á heimasíðuna mína
 
 
 
Hugmyndin um að halda þessari heimasíðu uppi mér sem og restinni af veröldinni til yndisauka kom upp þegar ég hélt til Shanghai í skiptinám. Helsta markmiðið var að halda fólki upplýstu um ferðir mínar. Sýna fólki reglulega fram á það að ég væri á lífi, hvernig allt gengi fyrir sig, hvað ég væri að upplifa hverju sinni. Síðunni hélt ég svo einnig uppi þegar ég fór í CBS og til Mexico og er ætlunin að halda henni jafnvel út framvegis á ferðalögum mínum um heiminn, hvert sem leið mín liggur...