Ég kom í heiminn 26. apríl 2006 kl 01:03 á LSH í Reykjavík, vó 4185 gr (17 merkur) og var 54 cm á lengd.
Þegar ég fæddist var hárið mitt rauðleitt og augun blá.
Fæðingin var töluvert erfið fyrir mömmuna mína og var ég tekinn með keisaraskurði eftir 24 klst baráttu. Ég var á vökudeildinni í nokkrar klst áður en ég og mamma vorum lögð inn á sængurkvennadeildina þar sem við vorum fyrstu 5 daga lífs míns.