Iða Ósk Gunnarsdóttir
 
 
Fiskurinn.........
        Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er breytilegt vatnsmerki og getur því tjáð sig á margslunginn hátt. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en getur átt erfitt með að takmarka sig og 'fókusera' á eitt ákveðið. Hann er stórhuga.......
       Tákn Fisksins er tveir fiskar sem synda hvor í sína áttina, en eru eigi að síður tengdir saman með bandi. Þetta hefur verið túlkað á nokkra vegu. Ein kenningin er sú að til séu annars vegar Fiskar sem syndi á móti straumnum og hins vegar þeir sem láti sig berast með veðri og vindum lífsins. Þetta getur verið rétt, en einnig er hugsanlegt að þetta tákni að í hverjum einstökum Fiski búi tveir eðlisþættir eða ákveðin klókindi. Fiskurinn geti því synt á móti straumnum og geri það þegar sá gállinn er á honum, en kunni einnig að sæta lagi og berast með straumnum þegar það hentar honum betur. Önnur kenning er sú að annar Fiskurinn sé í þessum heimi en hinn lifi í annarri veröld, í heimi ímyndunarafls, lista eða andlegra málefna, eftir því hver persónuleg viðhorf viðkomandi eru. Það er að minnsta kosti staðreynd að Fiskurinn þolir illa gráan og hversdagslegan veruleika og þarf á því að halda að glæða líf sitt litum og búa til ævintýri.
NÝTT