Laugardaginn 1. apríl, átti ég síðasta tuttugu og eitthvað afmælið mitt. Gurrý var búin að standa á haus alla vikuna við að baka (eins og sönnum húsmæðrum sæmir) þvílíkar kræsingar. Allskonar kökur og réttir og salöt og ég veit ekki hvað og hvað. Fékk meirað segja morgunmat og söng þegar ég vaknaði.
Það komu margir skemmtilegir gestir og setið lengi að snarli og drykkju í góðra vina hóp. Nú vill ég nota tækifærið og þakka fyrir mig!
Það sem stóð helst uppúr var þegar Gurrý sagði að GLÚ væri svo líkur gaurnum í CSI LasVegas og þegar mamma réði Gest sem lögfræðing á þeim forsendum að hún væri að fara að leigja íbúðina í kjallaranum og vildi ekki lenda í einhverju veseni. Arnar reyndi svo aftur að taka apamanninn á þakinu, sem betur fer í fötum í þetta skiptið. Hlakka svo til að skoða upptökurnar af því þegar Birkir rispaði glæsikerruna hans Pedro, viljandi!
Svo er Dóri að koma til landsins í lok vikunnar, það verður gaman að hitta hann aftur, en verst að ég kemst ekki í partýið næstu helgi. Það er nefninlega búið að plana eitthvað fyrir mig.......... vonandi sjáumst við aftur!