Bjarki er að gleyma að ég var líka með svuntu, búin að sletta í 3 hnallþórur og nuddaði hann á meðan á leiknum stóð. Hvað get ég sagt, ég er húsmóðirIN í D28.
Annars er er ég að komast að því að fótboltastórmót og fæðingarorlof er jafngott saman og súkkulaði og súkkulaði. Þannig að núna eru það bara börn á 2ja ára fresti. Við ákváðum sumsé að láta undan kúgun Sýnar og kaupa áskrift í 3 mánuði. þetta er nottla glæpur en hei, HM er bara ekki á hverjum degi og ég er líka svoldil grasekkja næstu vikunar þannig að ég á allt gott skilið.
Annað fréttnæmt héðan er að frumburðurinn var að fá sína fyrstu tönn í dag!:) stórviðburður af sjálfsögðu en ekki algott því að núna á ég í stórhættu að missa geirvörturnar. Sem getur ekki verið gott. fleira var það nú ekki.