5 mánaða!
 
Nú er Sigurborga Katla orðin 5 mánaða og einhverjir 66cm og rúm 7kg. Tíminn líður hratt.
Aðal sportið núna er hjólastóllinn, hún er betri í honum en Arnar og Jói til samans. Hún hefur allavegana ekki ennþá rifið buxur!
Annars er búið að vera geðveikt að gera í vinnunni, aðeins nokkrir dagar í frí. Það er eins og það komi upp panic ástand þegar fólkið fattaði að ég væri að fara í frí, svoleiðis hrúast inn verkefnin.
HM 2006 fór vel af stað í gær. Þjóðverjar, sem nú leika sóknarknattspyrnu unnu Costa Rica 4-2 í opnunarleik, þar sem vörn Þýskaranna var allt annað en sannfærandi. En tvö glæsimörk gerðu þennan leik eftirminnilegan. Pólland kom á óvart og átti ekki sjéns í Ekvador, töpuðu sannfærandi 2-0, áttu  nú samt tvö skot í tréverkið undir lok leiksins.
Í dag leika Englendingar og það verður fróðlegt að sjá hvort robo-crouch setji ekki eitt.
Verð svo að minnast á hvað ég er vel giftur. Þegar ég kom heim á opnunardegi HM var búið að þrífa alla íbúðina og leggja natchoz á borð fyrir leik! Áfram Gurrý!
 
 
laugardagur, 10. júní 2006